Gúndi Glæpon
Ég næ þessu ekki. Er ekki til nóg af sniðugu fólki sem er að gera góða hluti til að tala við? Þarf að hringja í Nonna Kóksmokk og Gurrí Skinkuveski til að gera hátt undir höfði? Þetta er bara svo ósmekklegt.
OK ég veit að við erum ofboðslega lítil þjóð þar sem er mjög auðvelt fyrir fólk í fréttum að verða frægt. Líka þeir sem eru í fréttum fyrir að vera kúkalabbar. En samt, ég efast um að The Weekender Magazine í Shrevesport, Oregon séu með einhvern Ted the Criminal á forsíðunni. "Ted the Criminal: 'I found god while beating a priest!'"
Ætli blaðamenn hérna séu á Ölstofunni alveg, 'Hey hann Blammi Handrukk er alveg HELVÍTI töff fýr. Class act. Eigum við ekki að takann í spjall?'
Þöggum hyskið í hel.





