<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener("load", function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <iframe src="http://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID=11318911&amp;blogName=%27tis+the+ballad+of+Bob&amp;publishMode=PUBLISH_MODE_BLOGSPOT&amp;navbarType=SILVER&amp;layoutType=CLASSIC&amp;homepageUrl=http%3A%2F%2Fballadofbob.blogspot.com%2F&amp;blogLocale=is_IS&amp;searchRoot=http%3A%2F%2Fballadofbob.blogspot.com%2Fsearch" marginwidth="0" marginheight="0" scrolling="no" frameborder="0" height="30px" width="100%" id="navbar-iframe" title="Blogger Navigation and Search"></iframe> <div></div>





föstudagur, júlí 17, 2009

Fail.


fimmtudagur, júlí 16, 2009

Skviss

Ég var að keyra heim áðan og rak augun í lítinn, einmanna Crocs skó sem lá á götunni, munaðarlaus og yfirgefinn. Hann biðlaði til nærstaddra um hjálp, skítugur og vonlítill.

Mikið þótti mér gott að keyra yfir hann.

miðvikudagur, júlí 08, 2009

Hress gæji.

Það var extra mikið af furðufuglum í strætó í morgun. Einn þeirra byrjaði skyndilega að hrópa. Ég var með heyrnartól þannig að ég heyrði ekki hvað hann sagði fyrst en skyndilega sneri hann sér að hinum farþegunum: "Ég gæti alveg ímyndað mér að drepa alla jarðarbúa! Brandarinn er búinn grínið er búið!" Hann sagði ekki meira það sem eftir var ferðarinnar en við hin marineruðumst í eigin ónótatilfinningu.

mánudagur, júlí 06, 2009

Shamone!

Ég segi bara einsog einhver sagði um daginn: Bara ef Michael Jackson væri á lífi í dag til að sjá þetta. Þvílík ást og virðing. Hann sá nú ekki mikið af þessu undanfarin ár.

Ég hef reyndar ekki mikið verið í tribbjútum og nostalgíu, enda var ég búinn að syrgja kallinn fyrir löngu. Fyrir mér dó Michael Jackson á gamlársdag 1989. Seventís og eitís var hans tími. Hann gerði ekkert af viti eftir það.

Jarðarförin verður samt spennandi. 20.000 manns með svartan hanska. Gullkista, fílaskrúðganga og Martin Bashir brenndur á teini.

fimmtudagur, júní 25, 2009

Sandkorn

Hver ætli verði fyrst/ur til að setjast á þetta fáránlega, mannlausa gras-svið á Lækjartorgi? Þetta er falleg hugmynd og allt það, en það er rokrassgat þarna og þessi upphækkun lætur þetta líta út einsog eitthvað dýragarðs atriði.

Um þetta leiti í fyrra var ég búinn að fara svona þrisvar sinnum til Víkur í Mýrdal en hef ekkert farið í sumar. Þannig að ég er með algjöran fíklakláða að drulla mér austur á morgun. Hlaupa uppá Reynisfjall, dæsa í fjörunni, Dyrhólaey, Halldórsbúð og Víkurbaðstofa. Mér líður einsog fanga sem er við það að losna, teljandi niður dagana með því að tattúvera strik í höndina.

Smá getraun í lokin.



Hvaða töffari er þetta? Sigurvegarinn fær poka af sandi úr Reynisfjöru.

fimmtudagur, júní 11, 2009

Bögluð nögl

Ég ætlaði að vera alveg yndislegur náttúrusonur og fara með fernur í endurvinnslugám. En svo klemmdi ég mig alveg hræðilega á lúgunni á gámnum. Hvað á ég að læra af þessu, ha?! Ég vildi bara gera gott sko! *kjökur* OK fokkaðu þér þá, bara fokkaðu þér endurvinnsluguð! Ég er farinn að sturta niður batteríum!!

laugardagur, júní 06, 2009

Ó, Ellý.



Er ekki í lagi heima hjá fólki? Hvernig getur þetta verið "mest senda" fréttin? Hverjum dettur í hug að senda þessa "frétt" í tölvupósti?

subject: Heyrðu Jobba þú bara verður að sjá þetta - BÓLUR!!

Áburður eilífðarblómsins

Home var í sjónvarpinu í gær. Gasalega næs myndefni og allt það, en lesturinn var alveg að drepa mig. Gætu frakkar mögulega verið háfleygari? Poki sólarljóssins? „Linnulaust sækir mannfólkið í poka sólarljóssins í stöðugri leit að smápeningi örlaganna. Börn stjörnuryks biðja móður eilífðar í dans á auðugum sléttum hégómans. Tími. Elífð.“ eða eitthvað álíka. Mörgæsarmyndin (franska útgáfan) var líka svona ofboðslega dramatísk og tilgerðarleg. Þar talaði frú mörgæs við eggið sitt. „Sonur vetrar, ávöxtur hjarta míns. Megi guðir hinna fjögurra vinda lýsa föður þínum veginn í faðm eilífðarinnar.“ Alltaf eilífðin sko.

Er þetta kannski bara hvernig frakkar tala dags daglega? Hér er frakki að rista brauð: „Móðir frjósemdanna hefur fært saman korn jarðar og lyftiduft tímans. Raftækið, samspil manna og guða. Færðu brauðinu yl ástarinnar. Logar hjartans. Eldur - eilífð.“

þriðjudagur, maí 26, 2009

Púff skræln

Oj hvað mér verður alltaf flökurt þegar ég sé fólk vera að reykja inni í bíl. Stundum tveir eða fleiri í einu. Gubb! Hversu marineraður þarftu að vera í kæfireyk og tjörusvita? Ég fæ bara tár í augun og varaþurrk við tilhugsunina að vera lokaður í þannig gasklefa. Er þá ekki næsta skref að reykja í símaklefa?

"Best að ég teipi þennan pappakassa loftþéttan til að reykja inní honum".

mánudagur, maí 25, 2009

Status Lifir!

Ég hef stundum spáð í að fá mér Twitter. En svo kemur á daginn að ég er með Facebook. Hvað er Twitter nema Facebook mínus allt nema statusinn?

þriðjudagur, maí 19, 2009

Og blaðamennskuverðlaunin fær...


miðvikudagur, maí 13, 2009

Flekkótt Kremjufés fer í framboð fyrir Störuflokkinn

Í heilu vikurnar hef ég horft alveg hreint agndofa á þessa yfirþyrmandi hrikalegu mynd:



Bara WÁ. Hvaða óvinur hans vinnur á Mannlífi og hvað gerði Sigmundur til að eiga slíka hefnd skilið? Þetta er næstum jafn slæmt og zombívampíran forðum. Mannlíf kýs væntanlega ekki Samfylkinguna.

Borgarahreyfingin = gæjar í gallaskyrtum með of mikið af dóti í brjóstvasanum

Hvurs konar hallæris luraflokkur er Borgarahreyfingin?

Afnema bindisskyldu? Á móti því að kalla hvorn annan "Hæstvirtur"? Hvað, viljiði ekki bara mæta í inniskóm og skítugum seríosbol, kallandi hvorn annan lagsa og kjallinn?

Þetta er Alþingi Íslands. Hundskist til að læra að setja á ykkur bindi (það er eflaust enn hangandi á krók síðan um jólin, enn með hnútnum á) og hysjið upp um ykkur brækurnar. Ef það er einhver staður þar sem menn ættu að vera skyldaðir til að sýna lágmarks snyrtimennsku og smekklegheit þá er það á Alþingi.

Það er nógu slæmt að sjá þingmenn sendandi SMS allan daginn einsog menntaskólaskinkur.

Ég veit að flíspeysan situr heima og kallar til ykkar og þið viljið vera með fætur uppá borði, berja í pott og snýta ykkur í ermina, en í guðs bænum sýnið stofnuninni virðingu.

Hér eru fleiri áríðandi málefni Borgarahreyfingarinnar:
a) Pizzudagur á föstudögum
b) Að afnema buxnaskyldu
c) Að fá að klípa í rass
d) Skylda þingmenn til að vera í gúmmístígvélum. Eða strigaskóm með frönskum rennilás
e) Að vera ekki litnir hornauga fyrir að ropa geðveikt hátt í þingsal.

þriðjudagur, maí 12, 2009

Garnagaul


mánudagur, maí 11, 2009

Þessi æska.

Um daginn keypti ég gamla Minolta myndavél, algjöran hlunk sem maður fóðrar með filmu. Ég held svei mér að ég sé farinn að safna gömlum, lélegum myndavélum.

Allavegana, þá var ég að taka myndir í vinnunni á föstudaginn. Sonur vinnufélaga var búinn að smíða vélmenni úr Lego og ég fékk að taka af honum mynd. Þegar ég var búinn sagði hann, „má ég sjá myndina!“

Haha en sætt. „Það er bara ekki hægt vinur. Þetta er svo gömul vél að ég þarf að framkalla filmuna fyrst. Hefurðu einhverntíman séð svona?“ Neibb, hann hafði aldrei séð filmuvél.

Filmur, vínyll, VHS og túbusjónvörp. Mér finnst svo fyndið þegar krakkar hafa aldrei séð þetta. Þetta er bara eitthvað dót sem hellisbúar notuðu í svarthvítri forneskju. Einsog þvottabretti og sláttuorf.

En ég er amk mjög glaður að krakkar eru enn að leika sér með Lego.

sunnudagur, maí 10, 2009

Blíbb

Jóní var að fá Nintendo DS Lite, svona litla lófaleikjatölvu. Hún skemmtir sér konunglega í bóndaleik, þar sem litli bóndakallinn hennar plægir akur og gróðursetur rófur og mandarínur og eitthvað. Svo er hún líka að spila kokkaleik frá Jame Oliver. Þar flippar hún rækjum á pönnu og býr til könglagratín.

Á meðan sit ég hér svangur og garðurinn okkar er í órækt.

Nei djók. Það er bara svo fyndið þegar fólk er að spila svona raunveru-leiki þegar raun-veruleikinn stendur og bíður fyrir utan gluggann. Þú veist, að spila uppvaskileik þegar það eru skítug hnífapör í vaskinum.

En jámm, ég hef ekki enn fengið að prufa, en ég vil spila nýjasta Mario og fá svona pakka með öllum gömlu Nintendo leikjunum (Double Dribble!). En segið mér, er séns að fá einhvern byssuleik? Þetta er svo óendanlega hresst og fjölskylduvænt hjá þeim.

En jæja ég er farinn að skipa Jóní að plægja akurinn og vökva hassplönturnar. úbbssss ég trúi ekki að ég hafi skrifað þetta. Ekki kjafta!