sunnudagur, ágúst 30, 2009
Laugarásvideo brann í nótt. Hörmulegt menningarstórslys. Jæja, nú er tímabil myndbandaleigunnar endanlega runnið undir lok hér á landi og æskan mun ekki þekkja annað en dánlód og þessa glötuðu videosjálfsala í 10-11. Skítt með Michael Jackson. Þessi dauði kremur í mér hjartað.
laugardagur, ágúst 29, 2009
¡Ay Karamba!
Mikið þykir mér gaman að spila á Karamba. Besta krád í heimi. Fólk er komið uppí gluggakistur í kringum miðnætti og er opið fyrir öllu, hvort sem það er glænýr danstryllingur eða Wings ('Silly Love Songs' er besta lokalag í heimi). Svona á djammið að vera. Allir að vera þeir sjálfir, að öskra með 'Go Your Own Way' og að láta einsog bjánar. Nóg komið af þessum ógeðis tekknó töffaraskap þar sem allir eru að geifla sig af stælum.
Nýjasta tækni og vísindi
Tinkertool = snilld
Tinkertool er skemmtileg viðbót við mac. Einsog þeir segja sjálfir:
TinkerTool is an application that gives you access to additional preference settings Apple has built into Mac OS X. This allows you to activate hidden features in the operating system and in some of the applications delivered with the system.
Þetta er í raun einsog System Preferences part 2, þar sem maður getur hakað við það sem maður vill og hvað ekki.
Sumt sem mér finnst gott:
* Maður getur tekið 3-D gler effektinn af dockinu (jösss)
* Maður getur valið á hvaða formatti screenshot eru (jpg, pdf...)
* Maður getur endanlega lokað á Dashboard, því helvíti.
ofl ofl ofl
Tékkið á Tinkertool hér og dánlódið því hér.

miðvikudagur, ágúst 26, 2009
Kert Russsell
Það er orðið alveg ofboðslega langt síðan það kom seinast rafmagnsleysi. Og þá er ég að meina einsog í gamladaga, þegar heilu hverfin brunnu yfir og steyptust í svarta myrkur. Þetta er varla hægt lengur, mjög eitís fyrirbæri.
Mamma kallar ♫rafmagnslaust♫ og allir koma saman með vasa- og kertaljós. Óundirbúinn hellaleiðangur. Börnin okkar eiga eftir að hlæja að þessu. "Til forna gat maður ekki stólað á rafurmagnið, það datt út í marga tíma í senn og þá var safnast saman í baðstofunni" segjum við með nostalgíuslef á hökunni og titrandi af inter-elli. "Þá var fundið sér eitthvað til dundurs: ullin kembd, börnin léku með legg og hímankall og faðir ykkar stóð með luktina úti á hlaði ef ske kynni að drýslar leyndust í myrkrinu".

þriðjudagur, ágúst 25, 2009
laugardagur, ágúst 22, 2009
föstudagur, ágúst 21, 2009
fimmtudagur, ágúst 20, 2009
Myndabás
Einsog þessi mynd sé ekki nógu óhemju kjánahrollsleg fyrir: Getið þið ímyndað ykkur hvernig Bjöggarnir og vinir þeirra létu á meðan tónleikarnir voru í gangi? Kinkandi kolli í takt, veifandi höndum einsog þeim sé alveg sama og gerandi puttatákn fyrir klíkur sem eru ekki til. Pabbi gamli sleppir sér smá og gerir einsog hann heldur að svona menn geri. Svona svartir menn. Fiddy er bara Mikki Mús að pósa með túristunum.
Ég skrælna af ógeði.