<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d11318911\x26blogName\x3d\x27tis+the+ballad+of+Bob\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://balladofbob.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://balladofbob.blogspot.com/\x26vt\x3d-2569463983589778356', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>





fimmtudagur, mars 02, 2006

Bob-arazzi

Við Dröfn vorum nýlega á djamminu og í miðjum tangó við nóttina fundum við okkur inni á Sirkus. Þar vatt sér að okkur lítill maður með skegg og gleraugu og vildi fara í sleik við Dröfn (eða kanski vildi hann bara komast framhjá...). Þessi litli maður var auðvitað mannvinurinn og Bítlaseyðið Sjonni Lennon. Ég smellti mynd af gerpinu þegar hann tók grey Dröfn í hrammana og the rest is a blur. Dröfn skellti myndinni á bloggið sitt og þar endar sagan.
Linkur


NEMA HVAÐ!

Í dag sé ég æsifréttabaðið Hér og Nú og þar er fjallað um dvöl Bítlagræðlingsins á landinu og hvaða mynd haldið þið að hafi verið notuð? Jú, mín (þetta færi doldið tilgangslaus færsla ef svo hefði ekki verið)! Ég hringdi beint uppí 365 prentmiðla og lagði þeim línurnar: Breiðholtið lætur ekki stela list sinni - hann vill fá borgað!

Haldiði svo að þessir öðlingar hafi ekki bara gefið mér heilan Þrjúþúsundkall fyrir birtinguna! HA! Þrjúsara! Ég er sáttur. Ég held meiraðsegja að ég muni leggja þetta papparassa-brask fyrir mig. Passið ykkur s'lebar! Ég er með myndasímann á lofti!

Waddaya say, DD? Þú táldregur þá inná hótel og ég hangi í reipi fyrir utan og tek myndir gegnum gluggann. Sounds like a plan, no?

1 Comments:

Blogger d-unit said...

Hey does the pope wear a funny hat?

við förum bara í útgerð og gerum þetta að aukabúgrein... þokkalega

DD-unit

1:54 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home