Berrass
Hinn meðalfrægi gimmikk-ljósmyndari Spencer Tunick tekur 'nektarlandslagsmyndir' af sýniþörfu fólki. Þessar myndatökur hans vekja skiljanlega athygli, en sérstaklega virðast fréttahaukar mbl.is hafa mikinn áhuga á illa vöxnum útlendingum á evuklæðunum eins og sjá má hér, hér, hér , hér , hér , hér , hér og hér
Hann kom víst hingað til lands um daginn til að vera viðstaddur sýningu á verkum sínum og sagði í fréttatilkynningu að íslendingum 'gefst kostur á að taka þátt'. Hvaða aula datt það í hug? Hvílík fásinna. Það hefur verið ansi hljóðlátt á opnuninni þegar það var stungið upp á að allir færu úr fötunum. Íslendingar þora ekki að klappa fyrir liðinu sínu á landsleikjum, hvað þá að draga fram samanskroppið rúsínutippið fyrir framan myndavél.

2 Comments:
var það ekki aprílgabb?
Það gæti allt eins verið, og þá stend ég leiðréttur, en sýningin hans er amk í gangi...
http://www.listasafn.akureyri.is/
Skrifa ummæli
<< Home