<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d11318911\x26blogName\x3d\x27tis+the+ballad+of+Bob\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://balladofbob.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://balladofbob.blogspot.com/\x26vt\x3d-2569463983589778356', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>





fimmtudagur, ágúst 14, 2008

Af aldri og mannasiðum

Einsog margir stend ég gáttaður (ÉG er amk gáttaður, aðrir æfasveittir) eftir orðaskak á netinu á milli svokallaðs Stebbavalda og DD-Unit og hennar velunnara. Eftir að hafa nagað sængina mína í svolítinn tíma hef ég fundið hvað það var við þetta alltsaman sem pirraði mig svona mikið.

Forsagan fyrir fjallgöngumenn:
Í nokkur misseri hefur Dröfn fengið hatrömm, dónaleg og Nafnlaus komment á bloggið sitt þar sem saur og hrauni er ausið yfir hana fyrir slæm tök á móðurmálinu (að hans mati). Þessi Nafnlaus skildi hvorki upp né niður í útlenskum poppkúltúrfrösum einsog "looking fierce," en í stað þess að loka bara vafranum og fá sér kleinu þá sá hann ástæðu til að moka dónaskap yfir ókunnuga manneskju, á hennar eigin bloggi (sem hann er ekki tilneyddur til að lesa) og í skjóli nafnleyndar í ofanálag. Einstaklega smekklegur gæji. En jæja: Svo hefur greinilega soðið uppúr og minn maður gat ekki setið á sér. Stebbivaldi, 54 ára gamall prófessor í heimspeki við Háskólann í Lillehammer birti þessa huggulegu pælingu sem sæmir svo sannarlega manni á sextugsaldri.

Einsog sjá má á athugasemdum við þessa færslu hans var viti borið fólk snöggt að hringsóla um hann með rökstuddu máli og háði. Og í miðjunni stóð Stebbi örvæntingarfullur og kýldi í loftið með vindhöggum, skoðanabreytingum og kommenta-eyðingum. Andsvar Drafnar má sjá hér ásamt skoðunum hennar lesenda, sem eru jafnt einsog hún skarpir sem svipur og með hvíthnúað greiparhald á góðri íslensku.

-- - - - - - -- - -

Ég nenni ekki að eyða fleiri orðum um Stebbavalda, enda væru sú orð tæpast skítsins á lyklaborðinu virði: leiðinleg umræða sem er komin út í algjöran farsa. Hins vegar var þetta sjónarspil dropi sem fyllti ákveðinn mæli sem ég er með innan um marga mæla innra með mér.

Ég er búinn að missa þolinmæðina fyrir Skrílslátum í Gamalmennum.

Það er auðvitað afrek að hafa komist yfir fimmtugt, sextugt eða sjötugt en að líta á það sem einhverskonar opinn bar fyrir dólgshátt, steinakast og hopp á skítugum skóm er hin argasta móðgun við sómasamlegt samfélag. Aldur virðist vera í öfugum vexti við kurteisi og tillitsemi.

Flugdólgar sem eru sveittir og trylltir, dauðadrukknir og sjálfum sér til skammar hafa alltaf vakið hjá mér furðu. "ÉG ER SEXTUGUR MAÐUR ÉG HEF LIFAÐ ERFIÐA ÆVI OG EKKI SKALT ÞÚ SEGJA MÉR HVAÐ ÉG MÁ DREKKA OG HVAÐ EKKI, ÞARNA STELPUPÍKA!" Virðist þeirra hugsun vera. Slef drýpur af skeggi. Aldrei hef ég heyrt um átján ára flugdólg.

Nýjasta nýtt eru Tjaldvagnadólgar. Tjaldstæði þar sem er 30 ára aldurstakmark (því unglingar eru alltaf svo fullir) er vakið um miðja nótt af trítilóðum kalli að spila Róllínstóns og að míga í sig af ofdrykkju. Reglur eiga ekki við hann því hann er FULLORÐINN MAÐUR og ekki söguna meir. Ég pæli í hvar þessi mörk eru, þar sem maður hættir að vera tillitsamur meðborgari og bara SKÍTTMEÐAA!

Munurinn á útihátíð og hestamóti: Ræðið.

Verst er það þegar durgar komast í internetið, einsog vaxið hefur undanfarin ár með moggabloggs-bónansa. Þessir ÓGURLEGU tuðarar og belgir hafa skyndilega fattað að þeir geta víkkað heitapotts-þrasið yfir gervalla þjóðina. og rétt einsog í heitapottinum hafa þeir mengað internetið með þvælu, dónaskap og tippaflygsum.

Það er einsog allur þroski í samskiptum sem menn hafa byggt upp yfir heila ævi hverfi einsog dögg á sundhettu þegar sest er við tölvuna ("svona tölvu já, er hægt að senda internet á þessu?") Ég skil það þegar börn fá tölvu í fermingargjöf og fara beint í að dissa Martein Skítbuxa... en menn á aldur við pabba minn??

Þetta skeytingarleysi um annað fólk gerir mig bara bumbult. Einsog Sveinbjörn var að benda svo réttilega á, þá er:

Internetland = Alvöruland.

Ef ég sé einhvern í ljótum buxum úti á götu þá legg ég það ekki á mig að þramma til hans alveg, "Hey djöfuls shitty pants eru þetta maður! Eigðu góðan dag, eða EKKI SKO! retarrd!" Nei, ég FOKKING GLEYMI ÞVÍ, lít annað og hugsa um ostborgara. Sama með netið. Hver NENNIR þannig spontant neikvæðni og dónaskap í garð ókunnugrar manneskju?

Fólk hefur of miklar áhyggjur af æskunni. Mér finnst að auglýsingar um hegðan á netinu og samskipti við annað fólk ættu líka að beinast til gamalmenna sem kunna að meðhöndla hvorugt.

14 Comments:

Blogger Erla Elíasdóttir said...

heyr, heyr!

11:07 e.h.  
Blogger Teitur Atlason said...

Hvað kemur aldur þessa prófessors málinu við? Hann má pirrast eins og honum listir. Ef hann nennir að pirrast yfir málfari á blogginu er hann bara í vondum málum.

Mér þykir sú staðreynd að Stebbivaldi sé 50 eða 60 ára ekki skipta neinu máli.

Þessi DD-Unit fer greinilega brjálæðislega í taugarnar á honum.

- - Hvað með það?

10:24 f.h.  
Blogger d-unit said...

teitur: ef ég fer í taugarnar á honum fine skiptir ekki öllu má alveg færa rök fyrir því en hann getur líka bara sleppt því að lesa mig - ég er ekki neydd upp á nokkurn mann

með yfirlætislegum gáfumannatón gefur hann skít ekki bara í bloggið sem er eitt heldur mína persónu sem er annað mál og að ég geti ekki sett saman heilar setningar og hvað eina...

en bobby ég svaraði gamla núna þar sem hann kallar þig ljóta flugu og mæli með að skoða það áður en hann tekur það bara út... eins og fullorðnum manni sem stendur í ritdeilu sæmir

luv dd

10:28 f.h.  
Blogger Bobby Breidholt said...

Teitur-
Mér finnst aldur hans koma málinu sem hér um ræðir við, enda er rætt um fullorðna menn sem haga sér ekki eftir aldri.

D-
Wá, ég tel að þarna hafir þú endanlega kveðið hann í kútinn. Held að hann klæji ofboðslega í delete-puttann.

Kv
Flugan

10:41 f.h.  
Blogger Laufey said...

djöfull er ég sammála,aldurinn skiptir máli.alltaf er verið að segja að þetta unga fólk kunni ekki mannasiði og að unglingarnir eru svo ókurteisir og hvaðeina. ég vinn í verslun og ókurteisasta fólkið er eldra fólkið.ég lendi voða sjaldan ef ekki aldrei að unga fólkið er með dónaskap og leiðinleg komment,einsog um daginn þegar eldri hjón báðu um bók með halldór laxness og fóru að miðla sinni þekkingu um manninn til mín og ég segji "jááá okeyy " nei það var ekki nógu gott því konan snýr sér að manninum og segir "já okey já okey já okey hummpphhh er það þetta sem þetta unga fólk segir í dag" og svo framm eftir götunum. ef þú hefur ekkert jákvætt að segja haltu þá bara kjafti, það langaði mig að segja en maður verður að bera jú virðingu fyrir þeim eldri.

2:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hallelúja!....mikið er hressandi að lesa svona á leið inní helgina! Hjartanlega sammála pistlahöfundi!

3:57 e.h.  
Blogger Anna said...

stebbivaldi er einhver súrasti karakter sem ég hef séð í bloggheimum og er þá gríðarlega mikið sagt.

Það er enginn að banna honum að tjá sig - til þess eru nú bloggin - but if you're gonna give it you have to know how to take it. Það kann hann ekki.

4:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sammála! Ég hef svo oft lent í dónalegu eldra fólki... Þetta mál er allt hið fáránlegasta en ég verð að segja að mér finnst þessi Teitur þarna besserwisser langleðinlegastur af öllum, djöfull er hann pirrandi!
Arna

5:51 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

PS. Remind you of anyone?

http://www.youtube.com/watch?v=Dl84jNp2eNw

9:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það má einnig skjóta því inn að þetta komment um macdónalds og bónus var allveg ótrulega fullorðinslegt og gerði þennan fílupúkablogger að aðalsmani í allra augum. Getur hann ekki bara hringt í þjóðarsálina og nöldrað.. Var það ekki búið til fyrir svoleiðis fólk.

3:06 e.h.  
Blogger Jonina de la Rosa said...

Ó gvuð ég veit ekki hvar ég á að byrja, þetta er orðinn svo mikill sirkus það hálfa væri nóg. En já ég svo sammála Örnu.

5:06 e.h.  
Blogger krilli said...

Hans refsing er að vera svona kvalinn yfir einhverju bloggi út í loftið. Settu smá Cetavlex á þetta kallinn.

11:33 f.h.  
Blogger krilli said...

KLAPPSTJÓRI :D

11:39 f.h.  
Blogger ogee said...

Ótrúlegt að fullorðinn snar-mentaður maðurinn viðri gramar skoðanir sínar svona útí bláinn.

Takk fyrir stebbi , takk fyrir að hressa uppá daginn hjá mér : D

11:08 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home