sunnudagur, janúar 31, 2010
fimmtudagur, janúar 28, 2010
Satan!!!
Ég horfði á hrollvekjuna The House of the Devil um daginn og ég bara get ekki mælt nógu mikið með henni. Bara hættu að lesa og sjáðu hana. Kvikmyndargerðarmennirnir hafa bara sest niður og ákveðið að gera eitís hryllingsmynd. Niður í minnstu smáatriði. Og þeir ná lúkkinu og fílingnum fullkomlega. Það er nefnilega auðvelt að klúðra eitís homage-i með einhverju djóki og of miklu af píanólyklabindum þúst. Þeir náðu þessu líka vel í Boogie Nights (fyrir utan Don Johnson gallann í endann).
En wá, þvílíkt eitís klám. Litirnir, sjónarhornin, plottið, leikmyndirnar... Jafnvel fonturinn í kreditlistanum er fullkominn. Þeir gáfu hana meira að segja út á limited edition VHS. Og auðvitað er hún alveg horfa-í-gegnum puttana óhugnaleg. Ekkert ógeðis-slash-fest einsog við erum vön í dag, heldur ekta gamaldags spenningur.
Það er ekki séns að þróunin sem er í gangi í dag snúist við. Það eina sem dugar oní æskuna í dag sem getur gúgglað mannaslátur á netinu hvenær sem er, er stans- og heilalaust blóðblæti og ódýr bregðuatriði. En mikið ofboðslega er gaman og hressandi að sjá svona gömul og góð hryllingsgildi.
En já, allir að sjá, eins og skot!
PS
Á morgun ætla ég að setja inn lag úr myndinni á Btown. Fylgist með!
miðvikudagur, janúar 27, 2010
tabbbla
Semsagt, iPad er bara til þess að vera á netinu uppi í rúmi?
Ég veit ekki alveg með hvert þetta stefnir, að maður geti alltaf verið með netið fyrir framan sig. Ég hélt að Wall-e væri djók en ekki leiðarvísir um hvert við eigum að þróast. Ég bíð bara eftir internet-derhúfunni svo maður geti líka verið að lufsast á facebook meðan maður þvær á sér hendurnar.

miðvikudagur, janúar 20, 2010
Slubb nag mjomm
Kæru Hollywood píkur:
Hættið að sjúga, naga og bíta á ykkur fokking puttana!!
Þetta er svo einstaklega óspennandi og fyrirsjáanlegt. Ef þetta á að vera sexý, þá er ég greinilega ekki meðlimur í bakteríublætisklúbbnum. En ég býst við að markhópurinn þeirra laðist að þessu, enda vaxnir niður einsog þumalputti.

þriðjudagur, janúar 19, 2010
ponsulitla Krílsland
Það eru alls ekki nýjar fréttir að við erum lítil, lítil þjóð sem þarf stanslaust að minna sjálfa sig á hvað hún er STÓR og STERK. Enginn má sjá litla ísafold gráta. Fjölmiðlarnir hafa alltaf verið þessi litla rödd sem hvíslar í eyrun okkar (eða öskrar öllu heldur), hvað við erum VÍST frábær. "Dúkka í íslenska þjóðbúningnum til sölu á EBAY!" Sagði ein fyrirsögnin um árið.
Á meðan góðærið stóð sem hæst var sjálfstraustið okkar þrútið og sveitt á alþjóðavettvangi og þá róaðist þessi 'við erum líka' mantra örlítið. En núna? eftir hrun og Æseif? Fffffuuuuu! Pínuborgarinn er kominn aftur af heift! And this time it's personal!
Stefán Karl er óþekkjanlegur sem Grinch í Disneysýningu í Hollywood, en okkur finnst það alveg merkileg staðreynd að frægt fólk sem á heima í Hollywood kemur þangað með börnin sín. SLASH horfði á Stefán Karl okkar! Wá þúst... Ísland maður... *bank á bringuna* (og ég er viss um að Slash hefur verið alveg spellbound á smábarnasýningunni)
Halli var einmitt að tala um frétt Vísis um Golden Glóps verðlaunin á Facebook. Ég leyfi mér að endurbirta hér:
Kathryn Bigelow var valin besti leikstjórinn. Bigelow leikstýrði á sínum tíma myndinni K-19, The Widowmaker, sem Sigurjón Sighvatsson framleiddi og Ingvar E. Sigurðsson lék m.a. í.
Þá leikur Jeremy Renner aðalhlutverkið í myndinni en Renner lék í myndinni Little Trip to Heaven, sem Baltasar Kormákur gerði fyrir nokkrum árum....
Myndin Avatar, sem James Cameron gerði, fékk fimm verðlaun, sem er einmitt sami fjöldi og íslensk kvikmynd fékk einusinni á Edduverðlaununum.
Jeff Bridges var valinn besti leikarinn fyrir myndina Crazy Heart, en Bridges þýðir "brýr" og á Íslandi eru einmitt margar brýr.
Besti leikari í aukahlutverki var valinn Christoph Waltz fyrir Inglourious Basterds og
besta leikkonan var valin Mo'Nique fyrir Precious, en Ísland er einmitt oft talið "precious" af ferðamönnum.
Heh Halli fyndinn.
En glataðasta dæmið um þennan hugsunarhátt er tvímælalaust fréttaflutningur af íslensku björgunarsveitinni í Haítí. Þeir eru auðvitað stórkostlegar hetjur, það vita allir. En það er einsog það sé verið að nota þeirra hetjudáðir til að pumpa upp okkar eigið sjálfsálit.
Í alvöru, prófið að taka hvaða frétt sem er um þá, en skiptið út "íslenska björgunarsveitin" fyrir "íslenska handboltalandsliðið". Nú eða "Jóhanna Guðrún" eða "Eiður Smári". Þetta er allt sama fréttin.
Íslenska björgunarsveitin var FYRST á vettvang!
Íslenska björgunarsveitin er að ferðast með BANDARÍSKUM herflokk!
Íslenska björgunarsveitin sat á bekknum þegar stúlka fannst á lífi.
NÚNA sjá allir hvað Ísland eru miklar hetjur! NÚNA sjá allir eftir að hafa verið vond við okkur útaf Æseif! SKO!
Haítíbúar eru þakklátir fyrir nærveru ÍSLENSKU björgunarsveitarinnar.
Sko, þessi jarðskjálftafórnarlömb væru þakklát fyrir simpansa með hjálm, ef hann gæti bara lyft braki af ömmu þeirra, skilljú. Ég heyri klingja í Fálkaorðum! Og móttöku í Leifsstöð. Og athöfn á Austurvelli.
VIÐ ERUM BEST!!!

sunnudagur, janúar 17, 2010
og Gyllta Pennan hlýtur...
Úr lítilli fréttaleysu á Vísi:
Fíkn í fjárhættuspil á netinu vaxandi vandamál í Bretlandi eins og víða í Evrópu og veraldarvefurinn hefur átt mikinn þátt í því."
Ég veit ekki hvar ég á að byrja.