Kert Russsell
Það er orðið alveg ofboðslega langt síðan það kom seinast rafmagnsleysi. Og þá er ég að meina einsog í gamladaga, þegar heilu hverfin brunnu yfir og steyptust í svarta myrkur. Þetta er varla hægt lengur, mjög eitís fyrirbæri.
Mamma kallar ♫rafmagnslaust♫ og allir koma saman með vasa- og kertaljós. Óundirbúinn hellaleiðangur. Börnin okkar eiga eftir að hlæja að þessu. "Til forna gat maður ekki stólað á rafurmagnið, það datt út í marga tíma í senn og þá var safnast saman í baðstofunni" segjum við með nostalgíuslef á hökunni og titrandi af inter-elli. "Þá var fundið sér eitthvað til dundurs: ullin kembd, börnin léku með legg og hímankall og faðir ykkar stóð með luktina úti á hlaði ef ske kynni að drýslar leyndust í myrkrinu".

4 Comments:
hahahaha, sprakk næstum úr hlátri hér í tímanum! Safnast saman í baðstofunni, algjör snilld.
heh! Hey tékkaðu á hinu blogginu ;)
Annars sjáumst við á fös!
Óvenju fjölmennur '74-árgangur á Hornafirði er víst orsök krónísks rafmagnsleysis bakk in ðe dei...
ég fékk alltaf að hafa kerti inní herbergi þegar það varð rafmagnslaust. Það var mjög spari.
Skrifa ummæli
<< Home