<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener("load", function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <iframe src="http://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID=11318911&amp;blogName=&#39;tis+the+ballad+of+Bob&amp;publishMode=PUBLISH_MODE_BLOGSPOT&amp;navbarType=SILVER&amp;layoutType=CLASSIC&amp;searchRoot=http://balladofbob.blogspot.com/search&amp;blogLocale=is_IS&amp;homepageUrl=http://balladofbob.blogspot.com/&amp;vt=4275128200184513213" marginwidth="0" marginheight="0" scrolling="no" frameborder="0" height="30px" width="100%" id="navbar-iframe" allowtransparency="true" title="Blogger Navigation and Search"></iframe> <div></div>





fimmtudagur, apríl 01, 2010

Falleg byrjun á aprílmánuði.

Ég er alveg svakalega spenntur fyrir deginum í dag. Fyrst ætla ég að kíkja á Essó þar sem er verið að gefa bensín handa þeim sem mæta klæddir eins og Silvía Nótt. Svo ætla ég niður í Kringlu þar sem ég las að Michael Jordan muni gefa eiginhandaráritanir. Svo ætla ég að fara niður í Laugardal til að reyna að sjá hreindýrið sem slapp úr Húsdýragarðinum. Bensíntankurinn sem ég fékk frá Essó kemur sér vel, því ég ætla að rúnta á strandstað flutningaskipsins Wilson Muuga en það á víst að gefa allan varninginn sem datt úr því. Svo enda ég daginn á því að sjá ABBA halda ókeypis tónleika í Bíóborginni. Góður dagur!

3 Comments:

Blogger Gulla said...

haha, frábært :)

1:20 PM  
Anonymous Nafnlaus said...

má þetta?

http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Lilju_Osk/eg-og-breidholtid

4:08 PM  
Blogger Bobby Breidholt said...

Nei, þetta má ekki.

Hennar vandamál er ekki Breiðholt, heldur frekar snobb, hroki og af myndinni að dæma, vínarbrauð.

10:47 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home