<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d11318911\x26blogName\x3d\x27tis+the+ballad+of+Bob\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://balladofbob.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://balladofbob.blogspot.com/\x26vt\x3d-2569463983589778356', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe", messageHandlersFilter: gapi.iframes.CROSS_ORIGIN_IFRAMES_FILTER, messageHandlers: { 'blogger-ping': function() {} } }); } }); </script>





föstudagur, maí 05, 2006

Nuthin' but net
(föstudagspæling)

Maður er sjaldan eins mikil hetja og þegar maður hittir fullkomlega í ruslakörfu með tómri dós. Allir eru alveg "Jei! Töffari!" Maður setur þá hendur á hnakka og hallar sér aftur í stólnum og er alveg "Heh, no proooob".

Ég væri til í að vera hittinn. Semsagt yfirnáttúrulega hittinn, að hverju sem ég kastaði mundi alltaf hitta fullkomlega, í hvert einasta sinn.

Án nokkurrar áreynslu og geðveikt chillaður á því gæti ég:

Kastað fjöður í gegnum bréfalúgu af tíu metra færi.

Hent hanska í loftið og kýlt hendinni fullkomlega inní hann.

Verið í myrkri með lykilinn í hnefanum, kýlt geðveikt fast út í loftið og hitt skráargatið fullkomlega.

Verið við barinn og kastað röri inn í annað rör.

Haldið á buxunum mínum fyrir framan mig og hoppað jafnfætis oní þær.

Svo eru það auðvitað litlu hlutirnir: Maður hellir aldrei skakkt í glas, gerir aldrei innsláttarvillur, litar aldrei útfyrir og kynlíf á trampólíni verður möguleiki.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home