For completists only
Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að hún Björk okkar Guðmundsdóttir er ógurlegur yfir-útgefari. Hún virðist stöðugt vera að senda frá sér einhver box-sett, söfn, best-of og video-pakka. Svo sá ég þessa grein í Pitchfork:
Lesa
...og þeir stálu orðunum úr munni mér. Svona í alvöru. Take it easy með fjárplokkið, Björk.
Eeeeh, hver er ég svosem að standa á sápukassa og benda fingri. Ég mundi eflaust gera það sama ef ég ætti tugþúsundir trylltra safnara sem gleypa við svona. Þessar eyjur borga sig ekki sjálfar. Á meðan það eru enn til ríkir japanskir krakkar og spænskir iðnhönnuðir með týpugleraugu sem berjast um þetta þá mun þetta halda áfram. Kanski er næsta skref að gefa út box-sett fyrir öll box-settin. Það box-sett kæmi í svona pappakassa utan af ísskáp.
"Björk - The Refrigerator Carton-Set". Svo mundi fylgja með svona segulstál eftir Gabríelu Friðriksdóttur.

2 Comments:
Nei, fyrst kemur Frigerator, svo Re-Frigerator.
Hugsaðu með veskinu Bjölli minn.
Wonderful and informative web site. I used information from that site its great. » » »
Skrifa ummæli
<< Home