Má ég fá smá gúrku með þessari pylsu?
Ég var að kjamsa á pylsu með tómat og sinnep báðum megin og að lesa eitt dagblaðanna í sjoppunni á móti vinnunni minni þegar ég rakst á litla frétt á öftustu síðunum. Þar var verið að segja frá því að Barbie-dúkka í íslenska þjóðbúninginum væri til sölu á ebay.
Er ég einn um að muna eftir því að þessi frétt er reglulegur gestur á síðum íslenskra ókeypis-blaða? Ég sver, svona þrisvar-fjórum sinnum á ári kemur svona gúrkubomba:
"TRYLLT BIDDING-FRENZY Í EITTHVAÐ SEM TENGIST ÍSLANDI Á ERLENDUM UPPBOÐSVEF!"
Í fyrsta lagi, who gives a shit? Og í öðru lagi: það er nöturleg tilhugsun að það virðist vera mánaðarleg rútína hjá íslenskum blaðamönnum að slá "Iceland" inn í leitina á ebay til að grafa upp svona fréttaleysur.
Ég reif fréttina úr blaðinu og þurrkaði sinnepsdrullu úr munnvikunum með henni.

1 Comments:
mér finnstetta eiginlega uppáhalds bloggið mitt.... með dlisted og mínu og gofugyourself
Skrifa ummæli
<< Home