Ég ætla að byrja með síðu með myndum af mér í þvengbrók. Hún mun heita String Bobby.
Á blaðsíðu 42 Fréttablaðinu í dag eru tvær óskildar umfjallanir um unga menn sem eru með svolítið sérstök blogg í gangi.
Annars vegar er Tilfinninga-Daði með síðu þar sem lesendur geta sent inn uppástungur um "tilfinningar" sem Daði svo túlkar fyrir framan myndavél. Á síðunni sjá t.d. sjá mynd af Daða túlka "klósettpappírinn er búinn" með geiflum við hæfi. Gottogvel.
Hins vegar er viðtal við Óskar Þór Þráinsson, sem vill reyna að skipta á hestalyklakippu og flugmiða til Þýskalands. Hugmyndin er að lesendur bjóða Óskari jafn góðan eða enn betri hlut í skiptum fyrir þann sem Óskar er með hverju sinni. Lyklakippan er orðin að vekjaraklukku þessa stundina. Ég óska honum velfarnaðar í þessu.
Vandamálið er auðvitað að þetta eru bæði stolnar hugmyndir. Tilfinninga-Daði er að herma eftir Emotion-Eric og hestalyklakippan er hin íslenska rauða bréfaklemma.
OK, þeir viðurkenna það reyndar blátt áfram að þeir séu að herma eftir erlendum fyrirmyndum sínum, en tvær umfjallanir um sitthvort hermi-bloggið er aðeins meiri skammtur af ófrumlegheitum en ég nenni að lesa um á einni og sömu síðunni takk fyrir.
Svo til að bæta ofan á skrípaleikinn er í hvorugri greininni slóð á viðkomandi blogg. Glæsilegt.

4 Comments:
einlitillyklakippa.blogspot.com/
ég hugsaði það sama þegar ég sá þetta.
Var að spá í að gera grínvefsjónvarpsþætti sem fjölluðu um gömlu sjóaratónlistina og fólkið sem stóð á bak við hana og kalla það kannski Trillu-rokk.
Og auðvitað íslenska milljónavefsíðan, sem og allar hinar sem hermdu eftir.
Aular. En sniðugir aular ef þetta virkar, I guess...?
Nógu miklir aular til að fá umfjöllun á blogginu þínu.
Þúsund þakkir.
Tilfinninga Daði
Skrifa ummæli
<< Home