Hoppsassa
Úff ég er búinn að vera LÍMDUR við ólympíuleikana undanfarna daga. Mikið þykir mér gaman að horfa á mannverur gera fáránleg afrek. Fimleikaliðið maður! hvernig er þetta hægt? Og hey á morgun er TRAMPÓLÍN keppnin! Ég er þar með gos og karamellur.
Mér finnst reyndar umfjöllun RÚV á leikunum til algerar skammar. Ekkert nema það sem maður sér hvorteðer alla daga: handbolti, fótbolti og hlaup. Ég hef horft á Eurosport heima hjá fólki sem á Fjölvarp og þar hef ég séð þrekhestasprikl, innandyrahjólreiðar, dýfingar, skotfimi, skylmingar, kraftlyftingar, dúfnaskytterí og kappróður. Og hvað er á RÚV? Klukkutíma analísering á íslendingum að tapa í handbolta.
Næst ætla ég að sækja um að vera með íþróttaþátt á ólympíuleikunum þar sem er bara skrítna dótið einsog hestaíþróttir, hafnarbolti, skútusiglingar, þarna stelpurnar með borðana (er til karlagrein í því?) og já TRAMPÓLÍN.
Wá ég var að sjá gæja lyfta 230 kílóum yfir höfuð sér. Halló halló.
PS
Ef ég myndi vinna olympíumedalíu (fyrir fúsball) þá væri ég bara alltaf með hana á mér. ég færi í sturtu með hana á mér. Ég hef nefnilega aldrei fengið medalíu sko. Sniff.

7 Comments:
það er aldrei of seint að fá medalíu. ég fékk mína fyrstu í fyrra og það var sko ekki fyrir að vera með í kvennahlaupinu!!!
Sammála að fimleika liðið er kreisí.
En afhverju eru 50 mismunandi sundgreinar? Ekki er keppt í hlaupum afturábak? Hver syndir eiginlega flugsund og til hvers? Gaman að fara yfir Ermarsundið í flugsundi.
Langsund, sprettsund, boðsund og hindrunarsund væru passlega margar keppnisgreinar - þá væri hægt að rumpa þessum leiðindum af á einum degi.
Afhverju er ekki keppt í að kafa? Annaðhvort að halda bara niðrí sér andanum (bad tv) eða kafa eftir glitrandi klinki og svoleiðis.
Eða keppt í hver gerir stærsta dýfinga-splassið.
Eða hver getur hoppað lengst útí laug í öllum fötunum.
Eða hver getur hlaupið lengst yfir vatnið. O.s.frv.
J:
Ætli ég fari ekki bara og kaupi mér eina. "Heimsins æðislegasti gaur".
Leynigestur:
Haha, hindrunarsund. Já og kafsund líka. Það fannst mér alltaf skemmtilegast í skólasundi.
Halli:
Geggjaðar hugmyndir. Ég væri til í að hoppa oní laug í öllum fötunum. Ef það væri liðakeppni þá myndi þetta vera einsog í partýbíómynd þar sem allir "WAAAÚÚ!" hoppa oní laug í einu.
Svo keppa þeir ekki í keilu??
Og hey: Hvað með allar íþróttirnar sem maður þurfti að gera í barnaskólaleikfimi einsog kaðlaklifur, jafnfætishopp og auðvitað Tarsanleik!
Bandí er reyndar grein. En ég vil brennó líka.
Jei! Það er mikið að einhver rekognæsar fimleikana og trampólínið! Nastia Liukin = Supergirl.
Langskemmtilegast og langflottast. :)
Ég fæ akkúrat allt annan pakka hérna í Japan. Bara sund, fimleikar, júdó og hafnarbolti. Hvað með að sýna Ísland - Egyptaland í handbolta í bara svona 5 mínútur!?
Skrifa ummæli
<< Home