<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d11318911\x26blogName\x3d\x27tis+the+ballad+of+Bob\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://balladofbob.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://balladofbob.blogspot.com/\x26vt\x3d-2569463983589778356', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>





laugardagur, febrúar 14, 2009

Hlekkó

Ég var að bæta í linkasarpinn þarna til hægri.
Undir 'Áfangastaðir'.
Þá er ykkar netferðalögum þessa helgina hér með reddað.


AV Club er besti dægurmenningar pésinn á netinu. Dómar og spjall, viðtöl og greinar. Og allt morandi í Simpsons tilvísunum. Í alvöru, það ætti að vera til drykkjuleikur.

Boner Party er í raun bara myndir af sætum stelpum, nema að það er geðveikt fyndinn gæji sem skrifar um þær. Ekkert klám, ekkert rúnk, bara fyndið og satt. Og þetta er sko bóner hugsandi mannsins. Engin fótósjoppuð, vöxuð rússnesk fylgdarkvendi hér.

Bumrocks, Lovefingers, Donna Slut og Disco Workout eru uppáhalds tónlistarbloggin mín.

Cute Overload og I Can Has Cheezburger? Eru minn daglegi skammtur af krútti. Sæt dýr og kettlingar að láta einsog asnar.

Damn Interesting er reyndar í pásu meðan þeir setja saman bókina sína, en þetta blogg er ákaflega áhugavert einsog nafnið gefur til kynna. Ráðgátur, vísindi og furðuleg fyrirbæri. Tímaritið Skakki Turninn stelur grimmt frá þeim.

D-Listed. Ef þú heldur að graftarbólan Perez Hilton sé eitthvað sniðugur, þá getur þú og Ellý Ármanns bara fengið ykkar slúður frá Fréttablaðinu. Megatíkin Michael K er óvægnasti og fyndnasti slúðurbloggari á þessari plánetu. Það er nokkuð öruggt að fræga fólkið myndi ekki bjóða Michael K í partý. Það myndi ég hinsvegar gera (sjitt ég myndi borga fyrir það).

Ffffound er ó svo ákaflega fallegt. Ekkert nema myndir af fallegum hlutum, flottri hönnun og öðru sem lætur mann segja Wá og kyssa tölvuskjáinn. Endalaust inspiration.

Go Fug Yourself. Heather og Jessica taka seleba sem kunna ekki að klæða sig og rífa þá í tætlur. Sprenghlægilegt.

Photoshop Disasters er nákvæmlega það sem stendur á dósinni.

Ég skoða eiginlega aldrei þegar fólk póstar youtube myndböndum og því myndi ég varla trúa að blogg sem er með ekkert nema youtube myndbönd væri skemmtilegt. En ég stend leiðréttur og horfi á Video Thunder upp til agna. Þvílíkt brjálæðislega áhugaverð og skemmtileg myndbönd. Hvað í andskotanum slá þeir inní 'search' til að finna þetta stöff?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home