Start of level six
*bíp*
Hver ætli hafi fundið uppá bíptestinu? Eflaust einhver fjallabróðir sem var í hitlersæskunni. En gæjinn sem las inná bandið? Hann er eflaust feitabolla. Maður bölvaði honum með blóðbragðið í munninum þegar maður dröslaðist fram og til baka. "Fokkjú level five. Auðvelt fyrir þig að lesa í makindum í notalegu hljóðveri með gúllas í nestisboxi við hliðina á þér! Hann hefur eflaust kynmök með snælduna í gangi!"
Þvílík martraðarstundin þegar maður sá íþróttakennarann koma með gettóblasterinn. Enginn tarsanleikur í dag. Fokking skepna í jogginggalla. Grátleg vonbrigði að hafa ekki skrópað til að spila Double Dribble. En enginn komst undan. Húsvörðurinn stóð fyrir útganginum með tryllingslegt glott.
Maður hefði auðvitað bara hlaupið beint í sturtu við fyrsta tón. Start of level sjampó. En maður varð auðvitað að endast lengur en stelpurnar þannig að maður þurfti að minnsta kosti að komast á level sjö. En hljóðgerfillinn sem er í þessu hljómaði alveg ágætlega. Nei djók auðvitað var hvert bíp einsog dómsdagsklukkan, lúðraþytur Lúsífers. En sko eftir á að hyggja var þetta flott 80's hljóð. Sérstaklega þarna "Bí-rú-rííp" inn á milli levela. Það ætti einhver að remixa þetta. Svona lag þar sem þess er krafist að dansinn sé hertur á tíu bípa fresti. Ég myndi mæta á næturklúbb með leikfimiþema. Gólfið grænt með allskyns lituðum línum, allir í Hummel skóm að sveifla sér í reipi og slá saman bandíkylfum. Smá kelerí á dýnunni.
Ég var að tala við Ívar bróðir um þetta merkilega fyrirbæri bíptest og hann sagðist líka vera með hlaupasting á sálinni eftir bíparann. Ívar er níu árum yngri en ég. Djöfull hlýtur kassettan að vera útúrþvæld og morkin eftir margra ára notkun. Margar kynslóðir í sárum eftir þetta segulband Satans. Nema auðvitað að þeir hafi uppfært í geisladisk í kringum '97. Digitally remastered - now with 25% more evilness. Hujj ætli þetta sé komið á mp3 í dag? Sækjum torrentinn og þrusum þessu í gang í ipodinum í ræktinni. Djöfuls súrkál væri það.

4 Comments:
Lausleg leit eftir píptesti leiddi ekki af sér hljóðskránna. Því miður. En ég fann þetta:
http://www.nintendo8.com/game/513/double_dribble/
N-joy
POWERPOST !
þetta er hugsanlega eitt það al skemmtilegasta og fyndnasta sem að ég hef lesið,
Bjössi nú ferð þú og skrifar bók og það hið snarasta
Start on page One *Pip*
Snilld Björn. Ég var búin að gleyma þessu bíp dæmi, algjör nostalgíu lestur! Ég fæ eflaust martraðir um þetta í nótt og vakna móð með blóðbragð í munninum.
Hahaha vá hvað þetta "bíp" hljómar enn í hausnum mínum. Þegar maður hljóp fram og tilbaka í þessu prófi þá leið mínúta sem klukkutími! Svo í endann lá við að maður gufaði upp af svita og hita. Fyrirtækið sem gaf þetta út hlítur að vera moldríkt, allir skólar í heimi með sömu kasettu?
Skrifa ummæli
<< Home