<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d11318911\x26blogName\x3d\x27tis+the+ballad+of+Bob\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://balladofbob.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://balladofbob.blogspot.com/\x26vt\x3d-2569463983589778356', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>





laugardagur, september 26, 2009

HAHAHHHAA

Alveg fer það djöfulli mikið í taugarnar á mér hvað útvarpsfólk er alltaf hlæjandi þessa dagana. Skríkjandi, hneggjandi fífl. Þetta er sorgleg Bylgjuvæðing. Maður býst auðvitað við svona skrípagang og er-ekki-gaman-hjá-okkur gerfihlátri af Bylgjunni, en nú er Rás 2 farin að herma eftir (enda að hríðfalla í hlustun skilst mér). Því er morgunútvarp Rásar 2 orðið að Síðdegisútvarpi Bylgjunnar. 'Dýr dagsins' og allir að gjamma og djóka oní hvort annað einsog það sé á þriðja bjór (kannski er það svo).

Ég er auðvitað enginn emódrengur sem hatar stjúpföður sinn, ég hef ekkert á móti hamingju og hlátri, en það þarf að gíra örlítið niður þessa geðveikislegu kátínu í útvarpinu. Allt þetta STUÐ og GAMAN klukkan korter í níu á morgnana er bara eitthvað svo sjúkt og gerfilegt. Ég þori að veðja að þegar það kemur lag, þá hætta þau öll að grenja úr hlátri og sitja þarna í þögn.

AAAAHHH!!HAHAHAHAAAAAH!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home