Björnsson
Eitt af skemmtilegustu einkennum myndbandsforsíðna og kvikmyndaplakata er að höfða til aðalleikaranna með eftirnafninu einu saman. Sjá dæmi að ofan. Það var reyndar mun meira um þetta í eitís og örlí næntís þegar Stallone, Willis, Schwarzenegger, Hanks, Norris, Guttenberg og Goldthwait réðu landi og láði á myndbandaleigunum.
En í hvert skipti sem ég sé svona lagað notað í dag þá finn ég yl í hjartarótunum, nostalgíufíkillinn sem ég er. Ég man þegar 'Monster in Law' kom út og auglýsingarnar öskruðu: LOPEZ! FONDA! Þá sá ég hillur vidjóleigunnar í gamla hverfinu fyrir mér. Ég fann pulsulykt og fékk Happaþrennuskafssilfur á fingurbroddana.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home