<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d11318911\x26blogName\x3d\x27tis+the+ballad+of+Bob\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://balladofbob.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://balladofbob.blogspot.com/\x26vt\x3d-2569463983589778356', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>





laugardagur, mars 11, 2006

Afmælisgestur 8

Ballaðan er eins árs!
Af því tilefni fékk ég nokkra sem ég les
reglulega til að koma með eina gestafærslu.
Þetta er:
Halli

Halló.

Afþví að Bob Blog I á afmæli þá fannst mér sniðugast að heiðra hann einsog ritsnillingar eru vanalega heiðraðir: með því að lesa uppúr verkum þeirra sjálfra, fyrir þá sjálfa, eftir þá sjálfa.

En þar sem að hann er einsárs þá vissi ég að fæstir hefðu tíma til að lesa í heilt ár, og kom því með plan:
a) Ég valdi setningu nr. 2 úr hverri einustu færslu frá byrjun -- setningu nr. 2 afþví að þá eru meiri líkur að hann sé kominn inní mitt hjartnæmt blaður um eitthvað stórkostlegt (eða leiðinlegt).
b) Ég klippti og límdi og bjó til blaður.
c) Ég ritskoðaði ekki, þ.e. valdi ekki það sem mér fannst sniðugra heldur valdi bara setninguna eftir fyrsta punktinn.
d) Ég hafði blaðrið allt í tímaröð, og reyndi að fikta sem minnst og leyfa þessu ritskrímsli að fæða sig bara sjálft.
e) Ef færslan var bara linkar þá tók ég oftast ekkert þaðan, en ef linkurinn var setning þá kannski tók ég.
f) Ég þrýsti stundum á enter.

Ef þetta er fyndið þá er það Bob Blob I að þakka, því hann skrifaði þetta allt.
Ef þetta er leiðinlegt þá er það honum að kenna, því hann skrifaði þetta allt.
Ég er bara peð.

Takk og til hamingju,
Halli

####################################

Push-button publishing indeed. Framundan er aðeins að bíða eftir að kúdósið rúllar inn. Þar sem það eru bara fimm lög inná honum núna þá er heppilegt að ræða aðeins um þau hér... Sýnist samt að þetta sé að mestu leiti leikin útgáfa af hinni frábæru heimildarmynd Dogtown and Z-Boys. Meira að segja Britney sagðist vilja verða meinatæknir. Millenium er nýja næntís. Vefurinn var helsti vettvangur hönnunarumræðna á Íslandi og kær samastaður grafískra hönnuða, ljósmyndara, arkitekta, vefhönnuða og annara sem létu sig hvers konar hönnun varða.

Ég hata Alice in Chains. Ég mæli með þessum geðveikt fyndnu myndasögum fyrir alla þá sem leiðist við að bíða eftir kærustum sínum. Mun straumlínulagaðra og þjálla í munni. Þar sem ég var að fara til tannlæknis í morgun þá varð ég að fá eitthvað við þessu svo ég færi ekki að hósta og emja og fá borinn í tunguna.

Ég er nokkuð umburðarlyndur hvað PC vélar varðar, en það er mín persónulega skoðun að Apple gerir mun betri búnað. Þegar það er frítt bús þá endar kvöldið sjaldnast eins skemmtilega og maður ætlaði í fyrstu.

Eitt laganna á nýju plötunni hans, Guero. Hún kemur fram undir nafninu M.I.A. og er að gera allt snælduvitlaust með laginu "Galang". Fílaði mig inná Sirkús þrátt fyrir að þar væri DISKÓTÓNLIST (hvernig getur samfélag sem álítur sig siðmenntað og vel meðvitað um nýjustu strauma í tónlist, hönnun og tísku látið það viðgangast að á heitasta öldurhúsi borgarinnar sé spiluð argasta diskómúsík. Hann hannaði flottasta sportbíl allra tíma að mínu mati, sem hann skírði eftir sjálfum sér. Í skjóli bakkusar verða menn ósýnilegir og óstöðvandi og krassa á allt sem fyrir verður. Það var fyrsta kvöld páskafrísins, ég var í mínu fínasta pússi (gömlum kartöflusekk bundinn um mittið með bréfaklemmmukeðju) og var á sjötta bjór. Bobby Fischer er snargeðveikur brjálæðingur og núna er hann okkar vandamál. Ég sendi slatta af dóti, og það var nú þannig að ein tillagan mín sigraði (bronsið) með glæsibrag.

Fyrst fundu þeir leigubílstjóra í Kaupmannahöfn sem hafði verið bútaður í sundur með vélsög. Ég er rétt að dífa tánni í þessa tónlist, því það er eitthvað svo rosalega mikill homma-harmsaga-heróín-deyja-úr-AIDS fílíngur í gangi. Ég heyrði um þá fyrst þegar ég var að vinna fyrir Iceland Airwaves. Þetta lið eru farið að bíða í röð heilum SEX VIKUM áður en Revenge of the Sith verður sýnd. Síðan er enn í vinnslu en ég er búinn að skella nokkrum myndum inn. Það er eitthvað svo ógeðslegt við þennan gaur. Slappaðu af og sprengdu búbbluplast. Þetta þýðir að flottasta og ofbeldisfyllsta sjónræna veilsa ársins verður ekki sýnd hérna fyrr en eftir tvo og hálfan mánuð! En viti menn, hér er nýtt lag með þeim og það er bara helvíti skemmtilegt.

BRITNEY ER ÓLÉTT!!! Mín kenning er sú að þetta er bara plat, publicity stunt. Á þessum lista má finna þær frægu stelpur sem ég er skotinn í þessa dagana. Sem sagt soldill stoner-metal fílingur.

Staður: Háskólabíó. Mín skoðun er sú að við Íslendingar erum ekki bara með þjóðarstolt af landinu okkar, heldur erum við líka stolt af því hvar við eigum heima. En skellti samt saman örstuttri færslu um lögin sem ég er að hlusta á núna. Maður fær hár á púnginn, flytur að heiman og FÆR SÉR NAFNSPJALD. Það er gríðarlegt úrval af skrítnum og framandi ávöxtum þar og datt mér í hug að taka fyrir nokkra af þeim skrítnari og fjalla um þá hér. Þessi ígulker-legi ávöxtur er með grófum hárum og er mjúkur viðkomu. Og hér má sjá Triumph the insult comedy dog TÆTA Simon Cowell í sig. Afar hlægilegt.

Ég var að róta í ávaxtadeildinni þegar Harpa kom aftan að mér og sagði, "Hvað með þennan?" Hann heitir Ugly, en mér finnst hann ætti að heita Myglusína. Að utan er hann eins og blanda af tómat og lauk, en að innan... ég bara veit ekki. Já einmitt, drullaðu þér bara heim, þarna konuberjandi feitabollan þín.

Þarna má sjá undirritaðan bregða fyrir, kominn með óléttubumbu af streitu. Sýningin tókst vel og allir mjög sáttir. Það er ógeðfellt í rauninni.

Hér eru tveir sem hafa verið að pirra mig lengi:

Hérna eru ördómar um restina af ávöxtunum sem ég át:
Ég þoli ekki þetta ríka fólk... af því að ég er auðvitað svo ógeðslega öfundsjúkur. Hún á auðvitað ekki séns í Norðmenn, sem koma með besta lag sem Bon Jovi sömdu aldrei. Ég fann: FF Group, JJ Group, FL Group, Ice Group, Avion Group, Barry Group, Dagur Group, Media Group, Atorka Group, Baugur Group, Gadget Group, Actavis Group, Activity Group, Bakkavör Group, Seriatim Group, Icelandic Group, Ice-Barter Group, Opin Kerfi Group og STD Trading Group. Útskriftin var haldin með pompi og prakt í Borgarleikhúsinu og var, eins og gengur og gerist, langdregin á köflum, en þó lifnaði yfir athöfninni þegar þeir settu í gang myndverk frá 1970, þar sem einhver kona sem spilaði á fiðlu var að blanda saman tónlist og myndbandsbrellum. Við erum komin inn í öld stafrænnar ljósmyndunnar og því ætti að taka þessar úreltu filmuvélar og brjóta þær í mél og henda í næsta moltuhaug. Af myndunum af þessu rauðhærða liði að dæma mun afkvæmi þeirra líta Svona út.

Ljúflingarnir í Hive redduðu okkur Hörpu og nú sitjum við í sitt hvorum enda stofunnar og lufsumst á netinu í staðinn fyrir að tala saman eins og fullorðið fólk. Þeir vinna lang oftast einhverskonar verka- eða erfiðisvinnu: gröfukallar, smiðir, múrarar, bifvélavirkjar og sjómenn. Þeir eru stjörnur í nýrri auglýsingaherferð frá Esso þar sem þeir birtast í gerfum frægra tvíeyka kvikmyndasögunnar (Men in black, Wayne's World... samt fæ ég ekki skilið hvernig að þykjast vera kvikmyndapersónur tengist bensínstöð). Á þeim tíma var þetta kjörinn staður fyrir sumarbústað, nálægt Reykjavík en samt nægilega afskekkt.

Textinn er: The World's gayest logos. Nýji singullinn frá Goldfrapp hljómar einna helst eins og lag með T.Rex. Mikid jamm var i gaer med Petru og vinum hennar. Og það er ekki eins og að það þurfi að gera eitthvað flókið, það þarf bara að laga heyrnatólaplöggið. Eða bæði? Skoðið þær hér. Getur þessi douchebag mögulega verið með meira harðlífi?

Í London fór ég á *ekta* enskan veitingastað, þ.e. stað sem selur bara enska rétti. Smá distörbing, en fyndið. Það er svosem ekkert frásögum færandi nema hvað að þeir eru með svolítið einkennilegt merki. Þessi ófrýnilegi massi af hári var einu sinni á höfðinu á mér en er núna á leiðinni to that great wig factory in the sky. Ég ætti bara að gera eins og Mariah Carey....og bara FOKKING AIRBRUSHA MAGAVÖÐVA Á MIG!!

Myndir af föstudagsdjamminu á Flickr síðunni minni. Þetta var maður að grúfa við í unglingavinnunni á sínum tíma... Þau voru snögg að taka niður þessa síðu eftir að hún fór eins og eldur í sinu um netið. Ég væri alveg til í að stinga báðum hnefunum á kaf í þessa leðju og troða því öllu saman uppí mig og smjatta á því þangað til tennurnar mínar leysast upp í sæta, brúnleita drullu og vella út úr munninum á mér.

MP3 mun taka á móti gestum í veislusal Kiwanisklúbbsins Höfða að Engjateigi 11. Enginn friður fyrir hönnunarpressunni... Mjög óheppilegur bolur til að vera í þegar þeir taka mugshottið af þér... En það sem er merkilegt við þetta lag er að þetta fann ég á 7" plötu í Kolaportinu. Hann er alger dvergur! Ein af þeim betri sem ég hef séð. Þessi selur er greinlega ekki að fíla að vera handleikinn af olíubornum, bláum höndum. Þér gengur ágætlega og ert komin með einn gæja sem er til í tuskið. Ég bara skil ekki hugarfarið á bakvið þetta. Þetta er síða sem fjallar um það sem má kalla á góðri íslensku 'urban legends'. Ég held að minnsta kosti að það sé morgunn.

England, Indland, Rússland, Þýskaland... Enginn kemst undan vel smurðri vélinni sem hefur það eina og göfuga markmið að halda gróða JK Rowling í algeru hámarki. Ég gretti mig og tek mér smók. Það er sára-sára-sjaldan að coverlög nái að vera betri en upphaflega lagið. Á þetta að vera fyndið? Húsið er háreist og hvítt. Ok, gott og vel, nema hvað: Þarna var verið að sýna glefsur úr nýjustu rómantísku gamanmyndinni "Douchebag for hire". Er hann ekki broslegur? Og þær elska það. Jæja, það er kominn nýr listi og það lítur út fyrir að þetta verði árviss viðburður (gaman gaman). Ég eyddi mestöllu kvöldinu á listafestinu Garnival þar sem ég var einmitt með eitt verk. Þannig má fá mjög grófan þverskurð á þeirri tónlist sem maður hefur sankað að sér. Dö, bringan.

BRMC hefur aldrei verið ein af mínum uppáhalds hljómsveitum. Edie Sedgwick er sólóverkefnið hans. Tugþúsundir sem ætluðu að "sit out the storm" eru nú strandaglópar á húsþakinu sínu og eru að deyja úr þorsta og vosbúð. Ég fann þennan agalega svefnherbergis emm-sí af algerri tilviljun á netinu. Guð, hvað það er viðbjóðslegt fyrirbæri. BRITNEY ER AÐ EIGNAST!!!

Þessi auglýsingasería fyrir jafnrétti kynjanna á launamarkaði byrjaði nokkuð vel. Nokkrir hæfileikaríkir, ungir tónlistarmenn héldu skemmtun fyrir sjálfa sig og þá sem vildu á þá hlýða og úrkoman var töfrandi kvöldstund þar sem frábær stemning og innilegt andrúmsloft héldust hönd í sveitta hönd. Þetta voru í 100% tilvika þeldökkir menn með attitjút sem voru ráðnir til að rappa eins og eitt erindi yfir ofsa þétt tekknóbít, oftast framleiddu í mið-Evrópu. Þau verða aldrei aftur spiluð í Bandaríkjunum. Algert performance-art.

Saga Gary Higgins er bæði átakanleg og athyglisverð. "Sounds as boots trudging over snow-covered tundra." Fyrst koma Franz Ferdinand með alveg hreint voveiflega lélega plötu og núna hafa The Strokes pungað út einum andvana. Glæsileg bygging, og samt eins og einhver hafi gubbað yfir hana.

Rafræn Reykjavík eru skemmtilegir útvarpsþættir. Mér fannst þetta fyndið í fyrstu (hálfviti er hún að vera að þessu á almannafæri) en kom the fuck on!

Lost! Hér eru mín fimm atriði:
1. Þeir eiga heima á Discovery Channel (uppáhalds stöðinni minni) og þeirra starf er að sanna eða afsanna allskyns goðsagnir sem allir trúa án sannanna.
2. Þar sem menn eru menn og konur eru líka menn.
3. And when the meeting it was done, she cast her eyes about and there she saw little Matty Groves, walking in the crowd.
4. Hvað er í gangi með Stróks?
5. C'mon! Fylgjumst með þessum gæja rotna!

Jeanne Beker! Núna geta allir náð í hvaða lag sem þeim dettur í hug, en um leið er gildi tónlistar sífellt að rýrna. Sá eða sú sem svarar þessari gátu rétt fær að launum myndarlegan glaðning.

Þetta mætti Bloggerinn laga. Meðal annars má sjá myndskreytingu mína fyrir The Zutons sem verður notuð í auglýsingaskyni fyrir Iceland Airwaves. Nýr iMac. Svenni fær í vinning að horfa á myndband af mér að dansa í nýja ipodinum mínum sem ég ætla að kaupa sem fyrst. Ég mæli með því að allir fái sér svona græju, best sími sem ég hef átt. Rarrrr.

Fólk vill oft flokka þá sem elektró band, en ég vil meina að þeir eru argasta rokkband. Huggy, eins og hún er kölluð, eyðir mestum sínum tíma í Los Angeles en hefur enn strekar taugar til Íslands. Ég var hlýr og sæll á meðan vitleysingarnir úti héngu klukkutímunum saman í frostinu til að vera í troðningi, svita og skítalykt. "Sorry stelpur ég er á föstu."

10 hlutir sem gera kæta mig:
1. Hvernig dettur nokkrum manni í hug að gera svona lagað?
2. Meiri Nostalgía...
3. Ég var vakinn með tertu og sekk af Babybel ostum af henni Hörpu og fékk svo tíma í nuddi að gjöf.
4. Ég vona að þú getir útskýrt hvað amar að mér og greitt úr flækjunni innra með mér.
5. Þeir eru bara sokknir í comedy-puns.
6. Skoðið síðuna hans Bob Log III:
7. Þú ert bara abbó.
8. Þú ert ekki Tim Burton, aulinn þinn.
9. Þetta fer alveg svakalega í pirrurnar á mér.
10. Það er ekkert leyndarmál að þessi blendingur inniskós og strigaskós er einn alvarlegasti glæpurinn gegn almennri smekkvísi.

Af hverju stytttir það ekki buxurnar sínar?

Núverandi tími: 18:52. Ég hef því samið 'Heimsins besta Kviss ever'.

Já, Elizabeth Carlton, konan sem stendur þarna til hægri við Roger Moore. Ég veit að skrifstofuvörur eru ekki mest spennandi hlutur í heimi, en það er alger óþarfi að fæla fólk frá með einhverjum vitleysingum að bregða á leik með penna og postit miða. Það verður hins vegar seint sagt um Kelly Osborne að hún sé myndarleg, en fyrr má nú aldeilis fyrr vera: Best var oft sagður fimmti Bítillinn. Ef hann John bara vissi að sonur sinn væri hómóerótísk hiphop vaxdúkka með hár úr hrauni þá myndi hann eflaust hringsóla um gröfina sína.

Hér eru myndir af gæjum sem búa til Transformers grímubúninga sem breytast í alvörunni! Ég veit satt að segja ekki hvor er fyndari, sögumaðurinn eða Lou Gramm/Steve Perry söngvarinn í bakgrunninum. Hér er 50 Cent vs. Queen!

Ég er oftast með litla skissubók á mér til að krota niður hugmyndir, teikna náungann og rissa niður eitthvað bull sem mér dettur í hug. Hvað er þá málið? Studio Stubborn Sideburn. Svart jólatré? Þegar svona verk eru spiluð allan daginn og langt fram eftir kvöldi í heilan mánuð fara hárin að grána. Það er að segja ég hata þau.

Þetta er tónlistin sem gerði allt vitlaust hjá mér 2005... Hingað til hefur mér verið nákvæmlega sama. Fór á sushibarinn í IÐU sem er með svona matarfæriband að erlendri fyrirmynd. Þetta er úr grein í tímaritinu Sirkus, þar sem nokkrar ungar stúlkur um tvítugt töluðu um daginn og veginn: Þetta eru fjórar gullfallegar stúlkur sem syngja og spila köntrý/tregablús sem stingur mann í sveitta handakrikana. DJ Margeir hefur haldið sitt árlega kvöld tileinkuðu fjólubláum ljósum, speglakúlum og draugi Lizu Minelli í heilan áratug og nú er komið að því síðasta. Þarna verða þau öll: Krissi nögl, Keppur gamli, Finnsi hattur, Magga súla, Austurbergsbræðurnir, Skakklappi og hinir ýmsu veðmangarar, okurlánarar og vasaþjófar úr 109 og 111.

MARS
"Ég leit um öxl og þetta ég sá"
Hér er fyrsti smellurinn hans, sem hann setti á netið á gamlárskvöld: Þetta er mjög póst-módernískt skilti: Þú vilt sjá hver gerir skandal í klæðavali, hver dettur á leiðinni inn á svið og hver gerir sig að atlægi við púltið. Ætlunin er að gera þetta að vikulegum lið, en ég lofa engu. Ætlunin er að gera þetta vikulega, en ég lofa engu. Þessi mynd var tekin hér um árið þegar allt lék í lyndi. Er ekki málið að skella sér?

Þeir sem hafa notað internetið undanfarið misseri ættu að vera komnir með ógeð á annars vegar CHRONICles of Narnia gaurunum og hins vegar Chuck Norris. Ætlunin er að gera þetta vikulega, en ég lofa engu. Þú'st, hann Bjölli er ekki sáttur við þetta mar! Bjölli og öll B-Holt familían ætla að senda 400 sms á aðstandendur keppninnar í mótmælaskyni. Ætlunin er að gera þetta vikulega, en ég lofa engu.

Náttbuxurnar voru dregnar fram og hækkað var í Gufunni í útvarpinu. The Flavor of Love heita herlegheitin, og er þessi þáttur sönnun þess að þeir hleypa hverjum sem er í sjónvarpið. Gluggar lokaðir? - Tékk. Ætlunin er að gera þetta vikulega, en ég lofa engu.

Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni Skopmyndir af Múhameð spámannni

Ég hef verið Boris undanfarið. Það er eitthvað við þetta fáránlega hjónaband jeppa og sportbíls sem kveikir í mér. Ekki bara er þetta draumakonan mín, heldur er þetta eitt smekklegasta myndband sem ég hef séð. Haldið kjafti og hættið að reyna að fela hvað þetta er! HEAD OUT ON THE HIGHWAY!

Ég skil við ykkur með þessum orðum:
Listen to her howlin' roar.

Hér eru reglurnar:
(Thanks for the hook-up, Svenni.)

Þar vatt sér að okkur lítill maður með skegg og gleraugu og vildi fara í sleik við Dröfn (eða kannski vildi hann bara komast framhjá...).Hann bútaði þetta allt niður og henti skemmtilegu tekknó undir. Þvílík snilldarhugmynd! Þær voru skrítnar, artý og alltaf með svolítið stónd yfirbragði. He was big and strong, in his eyes a flaming glow.

Ég var vart í gírnum til að sitja yfir heilli bíómynd á þeim tíma, en þetta var 'The Maltese Falcon' þannig að ég sló til. Kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en transar eru velkomnir.

Datt það annars í hug að hér gæti mögulega verið á ferðinni nýtt trend? Ég á afmæli eftir 65 daga. Innilega til hamingju með daginn elskan mín... Scorpions, Stuff, Sequential Art. Þegar Björn Þór byrjaði á þessu vorum við vinir hans öll efins. Á meðan aðrir vefleiðarar brenna út og loka heldur ballaðan ótrauð áfram í litríkum frásögnum um glæsilíf ofurstjarnanna, soraskap glysrokkaranna og áður óþekkta gullmola hversdagslífsins.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

váááááá hvað þetta er bilað og fékk mig til að tárast úr gleði, nostalgíu, kærleika og hlátri.

7:49 e.h.  
Blogger Jonina de la Rosa said...

ég get ekki andað lengur.... röddin er alveg farin.... hjálp.!!!

9:11 e.h.  
Blogger Sveinbjorn said...

fokksjitt. Þetta var of fyndið.

1:28 f.h.  
Blogger Bobby Breidholt said...

Halli, takk. átti eftir að segja það.

11:59 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home