Hrossabrestir og krem á putta
Þetta blogg á árs afmæli í dag. Kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en transar eru velkomnir. Ballaðan mun taka á móti gestum og gangandi í koníaksstofunni á Hótel Holti á milli 14 og 15:30 í dag. Þar verður brauðterta, bleikt gúmmelaði sem er eins og lax í laginu, gúmmíormar og lakkrískonfekt. Kötturinn verður sleginn úr tunnunni og krakkarnir fá blöðrur.
4 Comments:
til hamingju með afmælið bobby minn. ballaðan er bjútífúl. kv. betsí
til hamingju bjössi minn....eitt ár... þú þraukaðir mér tókst hvað ...tvær færslur..this is sooo your groove. hey hvernig væri að skella öllu saman í bók... anyway haltu ótrauður áfram blástu vind í seglin og ældu í storminn og prumpaðu á sjóndeildarhringinn smell ya later harpa
Til hamingju með áfangann kæri vinur. Ég kemst ekki í gegnum daginn án þess að lesa þá miklu visku sem þú hefur fram að færa. Og ég er algjör lúði að skrifa ekki afmælisfærslu. En veistu samt hvað, bloggið mitt er nákvæmlega einum degi eldra en bloggið þitt! Magnað.
Nú, til hamingju með bloggmælið þitt um daginn! Á næsta ári höldum við sameiginlega veislu.
Skrifa ummæli
<< Home