<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d11318911\x26blogName\x3d\x27tis+the+ballad+of+Bob\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://balladofbob.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://balladofbob.blogspot.com/\x26vt\x3d-2569463983589778356', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>





föstudagur, mars 24, 2006

TGIF

Hún Gulla komst í mikinn fjársjóð þegar hún rak augun í bókina Kynlíf frá árinu 1952. Hún er búin að vera að setja inn valda kafla úr þessum fræðara á bloggið sitt og ég mæli eindregið með því að þið lesið þessa visku. Hver veit, þið gætið lært eitthvað.
Bloggið hennar Gullu

Hér eru valdir molar:

Um sjálfsþægingu eða sjálfsflekkun:
Fullnæging sem einstaklingurinn framkvæmir sjálfur með ertingu utan samfara. Vergjarnar konur geta framkallað fullnægingu með því einu að þrýsta lærunum saman.

Um Vangetu:
Kynfæri konunnar eru í eðli sínu dýrsleg. Þetta dýrseðli er aumur blettur í ástarlífi siðmenntaðs fólks. Það verður því að forðast vandlega að ýta undir þá kennd. Ef óbeit á kynfærum konunnar er vakin meðal unglinga, t.d. ef þeir umgangast kynvillta menn, sem koma inn hjá þeim viðbjóði á þessu líffæri, þá getur þessi væga meðfædda óbeit orðið svo sterk, að örlítil lykt nægi til að gera hemlana virka og valda vangetu.

Um stúlkur, sem lausar eru á kostunum:
Slíkar stúlkur eru hættulegir smitberar, og ætti ætíð að gera ráð fyrir, að þær séu sýktar. Hafi maður ástæðu til að ætla, að stúlka eigi sér fleiri en einn elskhuga, eða gefi sig karlmanni á vald eftir stutta kynningu, er réttmætt að gruna hana um græsku, bæði siðferðislega og heilsufarslega séð.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home