Hrollur
Einmitt þegar maður heldur að bolamenningin gæti ómögulega verið meiri hér á landi, þá finnum við alltaf leið til að slá sjálfum okkur við. Bæjarins Bestu bjóða pulsur á tuttugukall og við ryðjumst í þúsundatali með vasana gleiða af klinki. "Röðin náði frá vagninum og að Lækjartorgi á tímibili!" Sögðu hressir starfsmenn BB í samtali við fjölmiðla.
Heyrðu, Bolur Bolson. Finnst þér í lagi að eyða klukkutíma standandi í rigningu í 200 metra langri röð til þess eins að spara þér 190 kall á sveittri görn með remúlaði?
Það er greinilega ekki gott tímakaupið hjá Gera-sig-að-fífli hf.

1 Comments:
Ég hef vaknað ýkt snemma og verið reiðubúinn í að bíða í röð tilað fá Jordan skó.
Það var Do-or-die ástand.
Þurfti reyndar ekki að bíða í röð. Og hefði ekki gert það allsber. En, þúveist, við erum öll lúðar, bara á okkar einstaka hátt.
Skrifa ummæli
<< Home