Gefðu
Það er "skemmtileg" tilviljun að á degi rauða nefsins er ég með bullandi kvef og eldrauða nasavængi af snýtingi.
En já, eins og venjulega þarf heilt þjóðarátak og margra klukkutíma Spaugstofumaraþon í opinni dagskrá til að kúbeina upp buddur landsmanna og rífa af þeim peninginn.
Mér finnst það ólýsanlega glatað og í raun ófyrirgefanlegt af nokkrum vesturlandabúa að sitja hjá og láta ekkert af hendi rakna til þeirra sem minna mega sín. Við svitnum við að standa í röðinni á McD's og færiböndum í okkur Ben & Jerry's á meðan 'Svöngu börnin í Afríku' koma á skjáinn. "Æji, skipt'um stöð elskan *hám* þetta er svo depressandi. Æh, nú fékk ég ís á Arsenal bolinn minn."
Úti í heimi er lið sem á bókstaflega ekki neitt. Ekkert. Það liggur og deyr með flugur í augunum. Hvernig þætti þér það ef þú, mamma þín eða litla frænka væruð að deyja úr bæði hungri og niðurgangi? Barn deyr úr malaraíu á þrjátíu sekúndna fresti og þú ert að fara að eyða fimmþúsundkalli á barnum á eftir. Skamm.
Ég þurfti ekkert að segja neitt af þessu. Þú vissir þetta allt fyrir.
Farðu hingað. Gerðu það. Núna. Ekkert rugl. Ýttu pizzukössunum frá veskinu og gefðu pening. Þetta er skitinn þúsundkall á mánuði. Það er einu hamborgaratilboðinu færra fyrir þig. Ef þú gerir þetta ekki STRAX þá ertu ómenni með gaffal fyrir hjarta.
- - -
OK. Var þetta ekki gott? Líður þér ekki betur núna? Sko hvað krakkarnir á myndunum eru ánægðir með þig. Þú bjargaðir lífi þeirra. Núna áttu greiðan aðgang að himnaríki og þú getur haldið inn í helgina með hreina samvisku. Partý hjá mér í kvöld.

1 Comments:
úff.....
Skrifa ummæli
<< Home