Hress gæji.
Það var extra mikið af furðufuglum í strætó í morgun. Einn þeirra byrjaði skyndilega að hrópa. Ég var með heyrnartól þannig að ég heyrði ekki hvað hann sagði fyrst en skyndilega sneri hann sér að hinum farþegunum: "Ég gæti alveg ímyndað mér að drepa alla jarðarbúa! Brandarinn er búinn grínið er búið!" Hann sagði ekki meira það sem eftir var ferðarinnar en við hin marineruðumst í eigin ónótatilfinningu.
11 Comments:
Svona fólk gerir líf mitt skemmtilegt
Já, án þeirra væri lífið sennilega mun meira boring!
Mikið ertu nú sorglegur kæri vinur. Ég er búinn að lesa nokkrar fræsulr eftir þig og það á að verðlauna þig fyrir heimskuna.
Já takk kærlega fyrir það hver sem þú ert. Ég vona að "fræsulr" mínar í framtíðinni veki álíka kátínu hjá þér.
Mér finnst fræslurnar þínar yfirþyrmandi skemmtilegar. Ekki hlusta á svona pussur.
Mér finnst þú snilld.
Ég er sammála seinustu tveimur ræðumönnum þú ert sá fyndnasti á landinu og með langskemmtilegustu færslurnar. Hálvitar eins og þessi fyrir ofan er greinilega með graut fyrir heila og örugglega einn sá leiðinlegasti sem hægt er að finna.
Ekki hlusta á svona ræpu.
Óli
Þú ert allavega flokkaður undir yfirskriftinni "Almennilegt blogg" á readernum hjá mér.
Held að nafnlaus #2 þyrfti að endurskilgreina orðið "sorglegur" og reyna svo að applíkera því á meira viðeigandi hátt, t.d. á sjálfan sig.
Skil ekki hvernig svona fólk nennir þessu... var game over í counter strike oder?
Æji mikið vildi ég að þetta tröll kæmi aftur og útskýrði mál sitt. "Sorglegur" og "heimska" segir ekkert voðalega mikið, og er því ekkert svakalega uppbyggileg gagnrýni. Það mætti jafnvel segja að þetta væri sorglega heimskuleg gagnrýni. Litli bróðir minn, sem er á fermingaraldri, notar þessi tvö orð óspart til að gagnrýna hluti sem honum mislíkar. Ég er að reyna að kenna honum að gera sig betur skiljanlegann. Þú, kæri nafnlaus, ættir að temja þér það líka.
shamone, þetta hlýtur að hafa verið ákafur crocsmaður að þenja sig.
mér finnst þú klár og skemmtilegur.
bobbyfan
Skrifa ummæli
<< Home