Laugardagurinn gerður upp
Í gær voru víst einhverjir ofboðslega spennandi leikir í knattspyrnu. Ég hafði ekki hugmynd um það fyrr en ég sá að allir kallarnir í afmælisveislu litlu frænku minnar voru andstuttir yfir þessu í sjónvarpsherberginu. Það er merkilegt hvað svona fer alltaf framhjá mér. Útvarpið segir kannski "ÍR tryggði sér ÍSLANDSMEISTARATITILINN í dag við trylltan fögnuð þúsunda!!" og ég er alveg, nú? Var keppni í gangi?
Hverju sem því líður, þá mæli ég með glænýjum sportbar á Austurstræti, þar sem Ömmukaffi var áður. Ég hef hangið þar nokkrum sinnum þegar ég er að bíða eftir að Jónína komi úr vinnunni sinni í Eymundsson. Venjulega myndi ég ekki hanga á sportbar, en maður verður bara að styðja öldurhús sem heita góðum nöfnum. Þessi sportbar heitir nefnilega... BJARNI FEL. Þvílíkt snilldarnafn. Barinn, English Pub og hinir aula-nafns-staðirnir mega taka sér Bjarna Fel til fyrirmyndar. Allir á Bjarna Fel!
En aftur að afmælisveislu litlu frænku. Mér finnst alltaf svo gaman að mæta í svona mannfögnuði. Mér finnst svona heitir brauðréttir með aspas-skinku-ost gumsi vera svo unaðslega góðir að það er engu lagi líkt. Ég gæti borðað þetta í öll mál. Puttamatur og marenstertur í eftirrétt. Man ekki hvort ég er búinn að skrifa um það, en ég hef alltaf viljað opna veitingastað sem heitir Ættarmót þar sem er bara svona veislumatur á hlaðborði. Fermingarservíettur og jarðarfararkerti á borðum, gestabók og svona brúsar með kaffi. Svo eru allir látnir syngja afmælissönginn af og til og fyndnir frændur halda ræður. Allir á Ættarmót!
Kvöldinu eyddum við Jónína í videogláp. Planið var að horfa á Manhattan, en þegar við kveiktum á sjónvarpinu var Children of Men í gangi. Þótt við værum búin að sjá hana, urðum við að horfa til enda. Því-lík óhemju gæðamynd. Alveg ótrúlega mögnuð. Maður fær vart tíma til að anda af spenningi og andakt. Manhattan var fín líka.
En jæja ég er farinn í bröns á Vox. Ciao.
-Bjölli Hvítflibbi

4 Comments:
Vá, ekkert smá helvítis snilld, 15-20 mínútna einnar-töku bardaginn í CoM. Geðveik mynd.
Ó svo sammála.
Fyrir um það bil sex árum uppgötvaði ég hvað það er auðvelt að búa til aspas skinku osta brauðruglið. Ég bjó til svona rétt á hverju kvöldi í um það bil viku. Svo fékk ég algjört ógeð.
Mér finnst svo fyndið að rétturinn sé alltaf kallaður ,, Heitur brauðréttur". Hann er aldrei kallaður neitt annað í minni fjölskyldu.
Já hvaða hvaða. Þessari veislu institúsjon verður að gefa nafn! Ég segi "GUMS".
Skrifa ummæli
<< Home