<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d11318911\x26blogName\x3d\x27tis+the+ballad+of+Bob\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://balladofbob.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://balladofbob.blogspot.com/\x26vt\x3d-2569463983589778356', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>





sunnudagur, október 05, 2008

OKEY!! Djísös!

DJÖÖÖHÖHÖHÖFULL er ég orðinn full-pakk-troð-saddur af þessari linnulausu efnahagsumræðu. Bara wá. Nóg komið. Hver einasta frétt í fréttatímum beggja stöðva er um kreppu, volæði og hrakspár. Þeir eru einsog Rain Man, alltaf að tönnlast á sama hlutnum. Við þurfum Tom Cruise til að kippa þessu í lag með Vísindakirkjumessu.

Svona voru fréttirnar á Stöð 2 í gær:

"Krónan aldrei verið lægri. Ráðamenn vilja taka upp ítalska Líru"

"Ástandið mun BÓKAÐ MÁL versna og við munum öll lifa í pappakössum og borða glerbrot og rottukjét fyrir áramót, segja sérfræðingar samróma"

Svo koma fimm fréttir í röð um hvernig erlendir fjölmiðlar fjalla um skrípaleikinn hérna. Það er fátt sem kitlar hégóma okkar einsog erlend umfjöllun um Ísland, þótt hún sé um klúður og kreppu.

"Seðlabankastjóri fullyrðir í fréttatilkynningu að Baugsmenn séu með rassafýlu og að þeir séu alltaf að kyssast og eru alltaf að pissa í sig. Liggaliggalá"

Svo koma íþróttafréttirnar: "Íþróttalið eiga ekki lengur efni á sápu né takkaskóm - munu nú spila með stráfylltum geitarmaga. Öll von er úti góðir íslendingar, KSÍ hvetur íslendinga til að fjölmenna á fjöldasjálfsmorð í Höllinni annað kvöld"

Þetta er bara svo óskaplega þreytt að ég nenni ekki einu sinni að gera grín að þessu. Við Jóní skelltum okkur bara til Þingvalla í gær til að sleppa við rövlið. Þar hefðu menn nú verið höggnir og étnir fyrir svona gengdarlaust væl.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home