I need a piercing like I need a hole in my head... Quickly.
Jæja, þá er þetta alltsaman búið. Sýningin tókst vel og allir mjög sáttir. Það var mikið stolt í mínu hjarta þegar ég gekk um í mannþrönginni á Kjarvalsstöðum og skoðaði frábær verk samnemenda minna. Eftir sýningu var slegið upp heljarinnar partýi í 105, sem er kaffistofan í húsakynnum hönnunardeildarinnar. Þar var dansað með tárin í augunum eins og í Ultravox laginu, þetta yrði í síðasta sinn sem dansinn dunaði hjá hönnunardeildinni, útskriftarárgangi 2005. The last hurrah.
1 Comments:
Enn og aftur til hamingju. Mér og fleirum fannst verkið þitt vera með betri verkum á þessari fínu sýningu :)
Skrifa ummæli
<< Home